Sameining Námsmatsstofnunar og Námsgagnastofnunar stendur nú fyrir dyrum og gert er ráð fyrir að ný stofnun gegni mikilvægu hlutverki í eflingu stoðþjónustu við menntakerfið, við að treysta gæða- og námsmat, afla gagna um menntakerfið og miðla sannreyndum gögnum. Hún mun einnig vinna að þróun námskrár og námsgagna og sjá um umsýslu tengda starfsmenntun.
↧